<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, október 31, 2005

Áframhaldandi gleði hjá okkur.......... 

Jæja stelpur



Gleðin heldur áfram hjá okkur. Það var gaman að sjá Möggu Pálu á æfingu á sunnudagin og það sást strax að þar er góður leikmaður á ferð þrátt fyrir að hafa verið í burtu í langan tíma, fagnaðarefni þar á ferð. Svo getur farið að þið sjáið ný andlit á æfingum hjá okkur á næstunni. Það eru leikmenn sem eru að skoða í kringum sig og við tökum vel á móti þeim að sjálfsögðu. Það er ekki búið að vera skemmtilegt veður núna undanfarið en það spáir hlýnandi þessa vikuna svo að það er enginn afsökun að sleppa æfingu, bara að klæða sig vel og svo, ég fýla hreyfa, hreyfa og mikið af því.


Dagskráin er:


Þriðjudaginn 1.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 20:45-22:00, klæða sig vel

Fimmtudaginn 3.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
ATH kl 19:00-20:30 ATH, klæða sig vel

Föstudaginn 4.nóv, Hreyfing
kl 15:15-17:00 (inni)
þarna verður eldra árið í 3.fl.kvk, allur 2.fl.kvk með leiðbeinanda og mér

Sunnudagurinn 6.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, klæða sig vel


Svona er þessi vika hjá okkur


Með kveðja Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, október 26, 2005

Alltaf hressir 

Jæja stelpur


Eins og þið sjáið þá er Comments-kerfið komið í gang. Endilega notið það en það var hún Signý sem reddaði þessu hjá okkur. Það er leikur hjá okkur á föstudaginn við ÍR í Egilshöllinni kl 21:00. En áður er æfing á fimmtudaginn (á morgun) í Frostaskjóli, eða KR-vellinum fyrir Guðný og félaga. En Guðný var göbbuð alveg svakalega efit leikinn við 3.fl.kvk og höfundarnir voru að sjálfsögðu Guðný og Magga, spyrjið Hlíf um þetta endilega.
-
En það er margt sem að við verðum að vinna í leiknum hjá okkur td. er of mikið bil á milli miðju og varnar, of mikið bil á milli varnarmanna, við gefum of oft boltan frá okkur í staðin fyrir að gefa í lappir á samherja, við eigum það til að snúa okkur inn í andstæðinginn á hættulegum svæðum, við biðum eftir sendingunni áður en við tökum hlaupið osfrv. En það sem er gott við fótboltan er að maður getur alltaf bætt sig.

Dagskráin:

Fimmtudagurinn 27.okt, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 20:15-22:00, klæða sig vel........

Föstudagurinn 28.okt, Leikur við ÍR í Egilshöll
mæting kl 20:00, leikurinn byrjar kl 21:00

Sunnudagurinn 30.okt, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, klæða sig vel........


Með kveðju Teddi

Comments:
Húrra, kommentkerfi... Signý gott með þig:)
 
Skrifa ummæli

Commentakerfi komið í gang 

Jæja dömur
Þá er þetta ágætis commentakerfi virkt..
Nú skulu allir kommenta til að sjá hvort þetta virki ekki örugglega

kv, Signý tölvunörd :)

Comments:
Vúhú glæsilegt!
 
Signý þú ert æði og greinilega mikil gæði þar á ferð.

kveðja Teddi
 
Skrifa ummæli

mánudagur, október 24, 2005

Þriðjudagurinn 

Mæting kl 18:00, en leikurinn ykkar byrjar ekki fyrr en kl 19:30. Þið eigið að taka út leik á milli 3.fl.kvk Vals b lið á móti 4.fl.kvk a lið. Þið spilið við 3.fl.kvk hjá Val a lið, það eiga allar að mæta sem eru í 2.fl.kvk. Mætið með penna og blokk til að skrifa.........


Sjáumst á morgun


Kveðja Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

Fylgist vel með blogginu..... 

Jæja stelpur

Æfingaleikurinn sem átti að vera á miðvikudaginn á móti KR verður ekki vegna tvíbókunar á tíma í Egilshöllinni. En það verður leikur á þriðjudaginn í Egilshöllinni og ég reikna með því að þið eigið að mæta kl 18:00 og horfa á leik sem að þið eigið að taka út. Eftir það þá spilið þið.

Alltaf hressir


Kveðja Teddi

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, október 21, 2005

Valur vs. Fjölnir, leikur no. 4 ...... 

Jæja stelpur

Þá er það leikur no. 4 og er hann við Fjölni. Það er mæting kl 18:15 í Egilshöllina og byrjar leikurinn kl 19:15.

Þær sem eiga að mæta eru eftirfarandi:

Byrjunarliðið er:

Stella GK
Signý
Magga
Guðrún
Sigrún
Beta Capt
Hildigunnur
Guðný
Hlíf
Rúna
Bergdís

subs
Ingó GK
Lovísa
Solla
Snædís
Begga Gná
Thelma
María


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

fimmtudagur, október 20, 2005

Leikur no. 3 búinn og ekki nógu gott...... 

Jæja stelpur

Þá er leikur no. 3 búinn og var hann við HK/Víking, endatölur 1-1. Ég var ekki alveg nógu sáttur við þennan leik hjá okkur vegna þess að ég fann það á mér fyrir leikinn að þetta yrði ekki okkar dagur. Hvers vegna spyrjið þið ? Já, vegna andrúmsloftsins í upphituninni og einnig hafði ég það á tilfinningunni að þið hafið ekki nennt þessu. Það er náttúrulega alltaf leiðinlegt að alhæfa svona vegna þess að það stóðu sig nokkrar mjög vel. En það er ekki nóg, svona leiki eigum við að klára ef að við viljum ná árangri, ekki satt ? Það er ekkert gaman að spila leik eftir leik og koma svo alltaf heim og fá spurninguna "Hvernig gekk ?", "Ja, við gerðum jafntefli en vorum betri". Við erum í 2.flokki og handan við hornið er meistaraflokkur og þar er ekkert elsku mamma. Ef þú stendur þig ekki þá ertu ekki inni í myndinni. Við erum nefnilega að fá fullt af færum ca. 12-18 færi í leik en skorum svo kannski ekki nema 1-2 mörk (KR og HK/Víkingur), engan veginn nógu gott.


Sjáumst í kvöld á æfingunni svo er leikur á móti Fjölni á föstudaginn.


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, október 16, 2005

Leikur no. 2 og sigur í höfn........ 

Jæja stelpur

Eins og við töluðum um eftir KR-leikinn þá ætluðum við að mæta ákveðnar til leiks á móti Þrótti R. Sem að við gerðum og strax frá fyrstu mín þá virtist þetta vera okkar leikur og settum við 1 mark á þær í fyrrihálfleik, mikil barrátta og fínt spil. Seinni hálfleikur við skorum 2-0, svo er eins og að við höfum gefið eftir og haldið að þetta yrði ekkert mál og þar af leiðandi hleyptum við Þrótturunum inn í leikinn. Eftir að þær skoruðu 2-1 lágu þær dálítið á okkur og vorum við heppnar að fá ekki fleiri mörk á okkur. En Rúna setti 2 í lokin og kláraði leikinn fyrir okkur og endatölur 4-1. Flottur sigur en maður má aldrei vanmeta andstæðinginn og sama hvað staðan er þá er alltaf staðan 0-0. Af hverju ? Því að þá er maður alltaf á tánnum og er að berjast fyrir að skora sigurmarkið og um leið að passa það að fá ekki á okkur mark...............

Dagskrá vikunar:

Þriðjudagurinn 18.okt, Egilshöll Leikur við HK/Víking
Sami hópur og mæti í síðasta leik á að mæta, nema að Beta litla og Sigrún bætast við.
Mæting kl 18:30 (fundur fyrir leik) og byrjar leikurinn kl 19:30. Hugið að svefni daginn fyrir leik sem og matarræði, daginn fyrir leik og á leikdegi. Munið GÆS, GÆS, GÆS, Geta, Ætla, Skal

Fimmtudagurinn 20.okt, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 20:00-22:00, klæða sig eftir veðri

Föstudagurinn 21.okt, Egilshöll Leikur við Fjölni
Mæting kl 18:15 (fundur fyrir leik) og byrjar leikurinn kl 19:15. Muna svefn og matarræði...

Sunnudagurinn 23.okt, Frostskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, klæða sig eftir veðri


Lesa vel.

Hvort sem þú heldur að þú getir eitthvað eða getir það ekki, þá hefurðu yfirleitt rétt fyrir þér.



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

miðvikudagur, október 12, 2005

Leikur no.1 er búinn....... 

Jæja stelpur

Þá er fyrsti leikurinn okkar sama búinn og endaði hann með tapi 3-2 fyrir KR. Þó að þær tölur hafi lítið um þennan leik að segja, því að við stjórnuðum leiknum svona 90 % og áttum á annan tug færa til að klára leikinn en þær fengu 4-5 færi í leiknum. Spilið hjá okkur var fínt og hefðum við getað gert þetta markvissara oft á tíðum. Því það sást á okkur að við höfum ekki spilað mikið sama, jú fyrirgefið mér við höfum mætt á 1 æfingu sama og þó það vantaði nokkra leikmenn sem spiluðu þennan leik á þá æfingu. Það verður fróðlegt að sjá hverjar mæta á næstu æfingu hjá okkur sem verður á fimmtudaginn, því að það er leikur á föstudaginn (inni í Egilshöll). En við tölum betur saman á fimmtudaginn en ég vill þakka þeim foreldrum sem komu til að styðja okkur í þessum kulda. Svo mjög bráðlega þurfum við að halda foreldrafund fyrir þá foreldra sem eiga stelpur sem eru fæddar, 87, 88 og 89.

En munum að "þetta er enginn fegurðarsýning" eins og einn foreldri hjá þeim svart hvítu sagði við dóttur sína á leiknum.
-
Muna að senda mér upplýsingarnar um ykkur, MJÖG MIKILVÆGT.

Dagskrá:

Fimmtudagurinn 13.okt, Frostaskjól (úti)
kl 20:00 (fundur (inni), talað um leikinn við KR)
kl 20:30-22:00 (æfing), muna að klæða sig eftir veðri.

Föstudagurinn 14.okt, Leikur í Egilshöllinni
Mæting kl 20:00 (fundur inn í klefa fyrir leik)
kl 21:00 byrjar leikur Valur vs. Þróttur R

Sunnudagurinn 16.okt, Frostaskjól (úti)
kl 14:00-16:00, muna að klæða sig eftir veðri.

Þriðjudagurinn 18.okt, Leikur í Egilshöllinni
Mæting kl 18:30 (fundur inn í klefa fyrir leik)
kl 19:30 byrjar leikur Valur vs. Víkingur R



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, október 09, 2005

Haustmótið....... 

Jæja stelpur

Bara minna ykkur á Haustmótið sem byrjar á þriðjudaginn 11.okt á móti KR. Tímarnir sem koma þarna fram eru hvenær leikirnir byrja, ekki hvenær á að mæta.

Svona er Haustmótið hjá okkur:

11. okt (þriðjudagur) kl 19:30 vs. KR, (Frostaskjóli)
14. okt (föstudagur) kl 19:15 vs. Þróttur R, (Egilshöll)
18. okt (þriðjudagur) kl 19:30 vs. Víking, (Egilshöll)
21. okt (föstudagur) kl 19:15 vs. Fjölni, (Egilshöll)
28. okt (föstudagur) kl 21:00 vs. ÍR, (Egilshöll)

p.s.
ekki gleyma að senda mér upplýsingar um ykkur á netfangið mitt (sjá hér að neðan).


kveðja Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, október 07, 2005

Á næstunni hjá okkur.......... 

Jæja stelpur
Ein æfingin búinn og margar eftir, hahahah. Þetta var fín æfing hjá okkur í gær í Frostaskjólinu, greinilega að þið voruð mætar til að taka á því. En í næstu viku byrjar Haustmót KRR og þar tökum við þátt að sjálfsögðu. Ég er búinn að fá það staðfest að þið sem eruð fæddar 86 eruð gjaldgengar og munuð því spila með okkur í þessu móti. En ég þarf að biðja ykkur um að senda mér á netfangið mitt teddy@internet.is upplýsingar um ykkur þ.e.a.s. Nafn, kennitölu, heimilisfang, síma (gsm og hs), netfangið, msn-ið ykkar og hvaða stöðu þið hafið spilað. Auk þess þarf ég að vita nöfn forráðamanna ykkar og síman hjá þeim, einnig ef að þið hafið meiðslasögu þá væri hún kærkomin líka.
-
Ég reikna ekki með að vera með æfingu fyrir leikinn sem er á þriðjudaginn hjá okkur á móti KR en við munum tala sama fyrir leikinn og fara yfir nokkur einföld atriði. Það getur verið að það verði einhver með mér á leiknum til þess að hjálpa mér og verður það sennilega Soffía, en það kemur í ljós síðar. Þetta mót er spilað mjög þétt eins og þið getið séð ef að þið kíkið á linkinn hér hægrameginn á síðunni undir "Haustmót Okt 2005".
-
Æfingarnar falla niður á föstudaginn vegna þess að Egilshöll er lokuð og á sunnudaginn vegna uppskeruhátíðarinar.

Dagkráin:

Sunnudagurinn 9.okt, Valsheimilið (uppskeruhátíðin)
Mæting kl 10:15 og hefst hátíðin kl 10:30. Eftir hátíðina verður boðið uppá andlitsmálingu og svo verða rútuferðir á völlinn á leik mfl.kvk Vals vs. Turbine Potsdam á Laugardalsvellinum í 8 liða úrslitum Evrópukeppninar. Frítt er á völlinn í boði VISA og hvetjum við ykkur öll til að mæta á leikinn, við þurfum á ykkar stuðningi að halda. ÁFRAM VALUR.

Þriðjudagurinn 11.okt, Frostaskjól - Gervigras (úti)
mæting kl 18:30 og byrjar leikurinn kl 19:30, (klæða sig eftir veðri)


Ég endurtek að það er undir ykkur komið hversu langt þið viljið ná í boltanum og því vill ég mæla með að þið skokkið sjálfar um helgina.


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, október 03, 2005

Á næstunni....... 

Sælar stelpur

Það er búið að vera mikið að gera hjá okkur í meistaraflokknum að undirbúa okkur fyrir Evrópukeppnina. Það verður 1 æfing hjá okkur í þessari viku og verður hún á fimmtudaginn en ég hvet ykkur til að fara út að hlaupa og byrja þannig að undirbúa ykkur fyrir keppnistímabilið. Munið að það er undir ykkur komið hversu langt þið viljið ná í fótboltanum og lífinu.
-
Fimmtudaginn 6.október, Frostaskjól
mæting kl 20:00, byrjum á því að hlaupa og svo verður æfing kl 20:30-22:00
-
Svo verður uppskeruhátíðin 9.október og verður hátíðin auglýst nánar á heimasíðu félagsins:
-
http://www.valur.is/main/index.asp
-
En ég vill minna ykkur á að meistaraflokkur kvenna er að fara að spila á móti Evrópumeisturunum kvenna FFC Turbine Potsdam frá þýskalandi næstkomandi sunnudag. Leikurinn verður kl 14:00 á Laugardalsvellinum, við þurfum á öllum þeim stuðningu sem að við getum fengið. Mætum öll og styðjum stelpurnar okkar, þær eiga það skilið.
-
Áfram Valur
-
-
Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?