<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

Næsta æfing..... 

Jæja stelpur


Næsta æfing er á fimmtudaginn og þá er síðasti skiladagur fyrir spurningarnar sem að ég lagði fyrir ykkur, muna eftir því ! Næstu helgi spilar mfl.kvk í Íslandsmótinu innanhús á laugardaginn í Austurbergi og ef að allt gengur upp þar þá verður spilað í Laugardalshöllinni á sunnudeginum. Það væri gott ef að þið getið kíkt á leikina og stutt við bakið á stelpunum en ég veit að það er mikið að gera hjá sumum vegna próflesturs.


Næsta æfing:

Fimmtudagurinn 1.des, Egilshöll
kl 21:15-23:00

ps.
láta vita hverjar komast á æfinguna í athugasemdirnar og einnig þarf ég að fá að vita hverjar ætla að fá líkamsræktarkort, skrifið það með líka.


kveðja Teddi S

Comments:
parf ad athuga:)
 
Skrifa ummæli

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Ekki nógu gott........ 

Jæja stelpur


Ekki get ég nú sagt að ég sé svakalega ánægður að keyra vestur í bæ og vera með æfingar þar, því ég á heima í Grafavogi. Hvað þá þegar að mætingin er fyrir neðan gangstéttarhellur og það er táfýla af hárinu á tittum......? Veit ekki hvaðan þetta kom en þið vitið hvað ég á við, er það ekki ? Við erum 2.fl.kvk hjá einu af besta liðinu í Íslandi og við verðum að haga okkur samkvæmt því. Það voru nokkrar með leyfi og þar af voru 2 á landsliðsæfingu, 1 veik, 1 út á landi og 1 að vinna og 4 farnar í HK/Víking. En þær sem mættu voru Stella, Snædís, Bergdís og Ingó.

Það er æfing í kvöld kl 21:30 í Egilshöllinni.

Ég vill að þið setjið í comment hvort þið komið eða ekki........ef þið komið ekki þá skrifið skýringu. Æfingin í kvöld verður sameiginleg en samt aðskilin en það eru mögulega nokkrar sem munu æfa með meistaraflokknum í kvöld. En hún Sasja danska mætir á svæðið í kvöld í takkaskóm.

ps. skoðið líka hér að neðan......


Með kveðju Teddi (tungumálasérfræðingur)

Comments:
Hæ! I´m coming! But i´m sick :( But we'll just see what happens! :)

Kv.
Sasja
 
Skrifa ummæli

mánudagur, nóvember 28, 2005

Sjálfsskoðun........ 

Jæja stelpur

Allir hafa gott af því að stunda smá naflaskoðun endrum og eins. Með naflaskoðun á ég við, að taka sjálfan sig og gagnrýni sig pínu. Það er einmitt fyrsta verkefnið. Skoðið ykkur sjálfar sem knattspyrnumenn. Svarið eins heiðarlega og ykkur er unnt. Það er ágæt hugmynd að líta á þessi atriði með einhverjum sem hefur fylgst með ykkur í gegnum tíðina og þekkir ykkur, mömmu, pabba eða systkini. Sendið mér síðan tölvupóst með svörunum. Ég mun ekki sýna neinum svör ykkar. Það eru ekki gefnar neinar einkunnir, enda ekki til nein röng svör við spurningum sem þessum.

Svarið eftirfarandi spurningum.

1. Helstu kostir þínir sem knattspyrnumanns (nefnið amk. 5 atriði)
2. Helstu gallar þínir sem knattspyrnumanns (nefnið 2 atriði)
3. Í hvaða stöðu telurðu þig spila best ?
4. Í hvaða stöðu telurðu þig spila verst ?
5. Hvar sérðu þig eftir 5 ár ?
6. Settu þér æfingamarkmið fyrir þetta tímabil.


Svör sendist á teddy@internet.is í síðasta lagi á kl. 20:00 á fimmtudagskvöld. Að lokum langar mig til að benda ykkur á að vera duglegar í skólanum og þó að fótboltinn sé farinn að taka meiri tíma nú en áður, þá á enginn að slaka á í skólanum. Það er nefnilega betra að sleppa æfingu og klára að læra heima, en að ætla sér að læra eftir æfingu, þá orðnar dauðþreyttar. En þær sem skipuleggja sig vel, þær semnýta tímann á milli skóla og æfinga til að læra og geyma alla tölvuleiki, MSN hangs og vídeógláp þar til að æfingu lokinni. :). Sem sagt að ef að þið eruð skippulagðar þá eigið þið ekki að þurfa að sleppa æfingu..............



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

Landsliðsæfingarnar 

Jæja stelpur

Til hamingju stelpur sem voru á æfingum U17 og U19 um helgina og þarsíðustu helgi. Í U17 voru Begga B. (3.fl.kvk) og Magga (2.fl.kvk) en í U19 voru Guðný, Thelma Ýr og þar átti Þórdís að vera líka en fékk frí vegna bakmeiðsla en allar þessar stelpur eru í 2.fl.kvk og verða eitthvað viðloðnar mfl.kvk æfingum fyrir næsta tímabil ásamt fleirum í 2.fl.kvk. Miða við þann efnivið sem að er að æfa hjá Val þá eiga klárlega fleiri stelpur eftir að vera í þessum landsliðum. En flott hjá ykkur stelpur haldið áfram á þessari leið.


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, nóvember 21, 2005

Jæja stelpur


Nýjustu fréttir herma að Sajsa hin danska lendi í Keflavík á fimmtudaginn. Einnig herma sömu fréttir að við munum þurfa túlk á æfinguna á föstudaginn í Egilshöllina en ekki öruggt, en ég leyfi ykkur að fylgjast með. Nú er ekkert annað en að sýna þessum meistaraflokks gellum í tvo heimanna og negla þær niður, OK ? En reyndar verður æfinginn á fimmtudaginn á KR-vellinum vegna þess að Beta lánaði mfl.karla tíman undir æfingaleik. Það er allt í lagi því við erum svo miklir naglar að við finnum ekki fyrir því.

Dagskráin hjá okkur:

Þriðjudagurinn 22.nóv, Egilshöll - gervigras með mfl
kl 21:15-23:00, klæða sig eftir veðri....... ha ha ha

Fimmtudagurinn 23.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 20:15-22:00, klæða sig eftir veðri....... I mean it girls

Föstudagurinn 24.nóv, Egilshöll - gervigras
kl 19:45-21:30, þið þurfið ekkert að klæða ykkur eftir veðri

Sunnudagurinn 26.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, húfu og vettlingar..........



Með kveðju Teddi
sem er sveittur við að læra erlend tungumál, ha ha ha ha ha

Comments: Skrifa ummæli

sunnudagur, nóvember 20, 2005

Flottir leikir um helgina..... 

Jæja stelpur


Ég vill bara óska ykkur til hamingju með æfingaleikina sem voru um helgina. 2 góðir sigrar í höfn, á föstudaginn var það Fjölnir sem steinlá fyrir okkur 3-0 og áttu Fjölnismenn aldrei möguleika í þessum leik á móti okkar sterku vörn. Svo á sunnudaginn spiluðum við á móti KR og þar var það sama uppá tenninginn og unnum við góðan sigur þar 4-0 eftir að staðan var 0-0 í hálfleik. En það er greinilegt að hálfleiksræðan hjá mér hafi vakið ykkur af værum blundi.

Stelpur vel af verki staðið hjá ykkur..........


Stelpur fæddar 86 munið eftir fundinum á mánudaginn í Valsheimilinu.............



Með kveðju Teddi S

Comments:
Hi Blogger, I'm over here in Hawaii on vacation and found a nice internet connection. I started searching blogs to get some ideas for my rash guards site, and fell into this excellent blog you have here. When I came on vacation I knew I'd get to surf the net, but I didn't think I'd get treat like this. The only good blogs are ones with owners like you, actually putting energy into them. Okay, just wanted to say hi and 'you're awesome' - better get back to my rash guards research...

good day ~~~
 
Skrifa ummæli

laugardagur, nóvember 19, 2005

Nú er komið að því........ 

Jæja stelpur
-
Það er ýmislegt að gerast hjá okkur þ.e.a.s. nú fara að sjást ný andlit á æfingum hjá okkur. Thelma Ýr (ÍA) og Hafdís (ÍR) eru búnar að skrifa undir félagsskipti og má búast við fleirum á æfingar hjá okkur á næstu vikum. Það kemur stelpa í lok mánaðarins frá Danmörku til okkar sem heitir Sasja, hún var í U17 hjá Danmörku og í liði sem heitir Hjorring en svo meiddist hún og hætti. Henni langar að byrja aftur og er að flytja til Íslands til að vinna og hafði samband við mig. Þessi skilaboð ættu að segja ykkur að okkur er alvara með að vera í toppbarráttunni í sumar og þær sem eru ekki tilbúnar í það verkefni með okkur vinsamlegast látið mig vita sem fyrst.
-
Í næstu viku breytast æfingarnar hjá okkur dálítið en verða meira spennandi fyrir vikið en þið sjáið það bara hér að neðan.


Dagskráin næstu viku:

Sunnudagurinn 20.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14.00-16:00, klæða sig eftir veðri.......

Þriðjudagurinn 22.nóv, Egilshöll - gervigras með mfl
kl 21:15-23:00, klæða sig eftir veðri....... ha ha ha

Fimmtudagurinn 23.nóv, Egilshöll - gervigras með mfl
kl 21:15-23:00, klæða sig eftir veðri....... he he he

Föstudagurinn 24.nóv, Egilshöll - gervigras
kl 19:45-21:30, þið þurfið ekkert að klæða ykkur eftir veðri

Sunnudagurinn 26.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, húfu og vettlingar..........



Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

föstudagur, nóvember 18, 2005

Áframhaldandi gleði hjá okkur....... 

Jæja stelpur

Áfram með smjörið og nú er það að vera duglegar að mæta á æfingar. Það er ekkert annað í boði en að koma okkur í betra form, nú fer Beta litla að láta sjá sig á æfingum aftur þannig að það verður gaman hjá okkur.


Dagskráin er á þessa leið:

Föstudagurinn 18.nóv, Egilshöll
kl 19:45-21:30

Sunnudagurinn 20.nóv, Frostaskjól - gervigras (úti)
kl 14.00-16:00, klæða sig eftir veðri.......

Þriðjudagurinn 22.nóv, Frostaskjól gervigras (úti)
kl 20:30-22:00, klæða sig eftir veðri.......




Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

Áfram með fjörið....... 

Jæja stelpur

Síðasta föstudag spiluðum við leik við 3.fl.kvk og töpuðum við honum. Ég hef voðalega lítið að segja um þennan leik en framistaðan hjá okkur sæmir ekki 2.fl.kvk hjá 1 af besta liðinu í Landsbanka deild kvenna, það er alveg á hreinu. Leikmenn þurfa að naflaskoða sjálfan sig nokkuð rækilega, held ég. En ekkert meira um það en bráðum þarf að halda fund með foreldrum til þess að fara yfir málin hjá okkur.


Dagskráin er á þessa leið.

Þriðjudagurinn 15.nóv, Egilshöll (inni)
kl 21:15-23:00, klæða sig eftir veðri.......

Fimmtudagurinn 17.nóv, Frostaskjól (úti)
kl 20:30-22:00, klæða sig eftir veðri......


framhald nánar síðar............


Með kveðju Teddi

Comments: Skrifa ummæli

mánudagur, nóvember 07, 2005

Mikið fjör og mikið gaman........ 

Jæja stelpur
-
-
Það er frekar erfitt að blogga vegna harðsperra, you know what I meen ha ha ha. En nú er nóg komið að bulli og nú fer að líða að þvi að Beta fari að koma á æfingar eftir uppskurðin. Það er ekki víst að við þekkjum hana því að ég frétti að þetta hafi verið "Extream makeover", ha ha ha. Þannig að ef að þið sjáið ný andlit á æfingum, spyrjið hvort að viðkomandi sé kölluð Beta. Nei, nú er ég hættur og kominn á ról og hefst þá fjörið.
-
En svo að ég segi nú eitthvað af viti þá fáum við að nota eitthvað af æfingartímunum sem að meistaraflokkur kvenna á í Egilshöll sem þær eru ekki að nota um þessar mundir.



Dagskrá vikunar:


Þriðjudagurinn 8.nóv, Frostaskjól-gervigras (úti)
kl 20:15-22.00, klæða sig vel

Miðvikudagurinn 9.nóv, Keiluhöllin-Öskjuhlíð
kl 20:00, allar að mæta


Fimmtudaginn 10.nóv, Egilsöll
kl 21:30-23:00, klæða sig vel ha ha ha

Föstudagurinn 11.nóv, Egilshöll (inni), æfingaleikur
kl 19:30-21:30

Sunnudagurinn 13.nóv, Frostaskjól-gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, sennilega leikur líka............


Með kveðju Teddi S


Comments: Skrifa ummæli

Mikið fjör og mikið gaman........ 

Jæja stelpur
Það er frekar erfitt að blogga vegna harðsperra, you know what I meen ha ha ha. En nú er nóg komið að bulli og nú fer að líða að þvi að Beta fari að koma á æfingar eftir uppskurðin, ekki víst að við þekkjum hana því að ég frétti að þetta hafi verið "Extream makeover", ha ha ha. Þannig að ef að þið sjáið nú andlit á æfingum, spyrjið hvort að hún sé kölluð Beta. Nei, nú er ég hættur og kominn á ról og hefst þá fjörið.
-
En svo að ég segi nú eitthvað af viti þá fáum við að nota eitthvað af æfingartímunum sem að meistaraflokkur kvenna á í Egilshöll sem þær eru ekki að nota um þessar mundir.


Dagskrá vikunar:


Þriðjudagurinn 8.nóv, Frostaskjól-gervigras (úti)
kl 20:15-22.00, klæða sig vel

Miðvikudagurinn 9.nóv, Keiluhöllin-Öskjuhlíð
kl ?, nánar síðar

Fimmtudaginn 10.nóv, Egilshöll (inni)
kl 21:30-23:00, klæða sig vel ha ha ha

Föstudagurinn 11.nóv, Egilshöll (æfingaleikur)
kl 19:30-21:30

Sunnudagurinn 13.nóv, Frostaskjól-gervigras (úti)
kl 14:00-16:00, sennilega leikur líka............


Með kveðju Teddi S

Comments: Skrifa ummæli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?